17. janúar 2008

Nýtt - rekstrarstöðvunartrygging fyrir félagsmenn Auðhumlu!

Auðhumla hefur gert samkomulag við Sjóvá til þriggja ára um rekstrarstöðvunartryggingu vegna bruna og óveðurs fyrir félagsmenn sína. Iðgjaldið verður greitt af Auðhumlu og er það um 14 aurar á lítra.  Um er að ræða ákveðið þróunarverkefni og verður stefnt að því að útvíkka trygginguna á samningstímanum þannig að hún nái einnig yfir ákveðna sjúkdóma ef það er talið hagkvæmt. Rekstrarstöðvunartryggingin hefur þegar tekið gildi. Gagnvart nýjum félagsmönnum tekur tryggingin gildi við fyrsta mjólkurinnlegg. Þeir sem þegar hafa rekstrarstöðvunartryggingar hafa val um að halda áfram hjá sínu tryggingarfélagi eða nýta sér þessa þjónustu Auðhumlu.

Við höfum verið minnt óþyrmilega á það á undanförnum misserum að slysin gera ekki boð á undan sér og því er hér um mikið hagsmunamál að ræða fyrir félagsmenn Auðhumlu. Með því að ganga frá tryggingunum á þennan hátt fáum við mjög hagstæð iðgjöld. Þá er einnig samkomulag um að félagsmenn Auðhumlu fái aðgang að forvarnarfulltrúum Sjóvár ef framundan eru breytingar á fjósum eða nýbyggingar.

Tryggingarskilmálar og aðrar upplýsingar um rekstrarstöðvunartrygginguna verða settar inn á Auðhumluvefinn síðar í þessum mánuði. Það voru Gunnar Jónsson skrifstofustjóri Auðhumlu og Sveinn Segatta framkvæmdastjóri hjá Sjóvá sem gengu frá samkomulaginu um rekstrarstöðvunartrygginguna.

Til baka

Auðhumla

Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.

Lesa meira

Gæðaráðgjafar

Hans Egilsson: Sími 861-4775

Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772

Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397

Steinþór Guðjónsson: Sími 836 4770

RM rannsókn: Sími 450-1242