20. desember 2007

Sveitapósturinn 12. tbl

Út er komið 12. tölublað Sveitapóstsins. Þar fjallar Guðbrandur Sigurðsson forstjóri Auðhumlu m.a. um fulltrúaráðsfundinn sem haldinn var þann 23. nóv. síðastliðinn, verðlagsmál og einnig þá breytingu sem er að verða á starfsvettvangi hans, en frá og með næstu áramótum mun hann hætta sem forstjóri MS en einbeita sér að störfum fyrir Auðhumlu.

Einnig er í Sveitapóstinum m.a. frétt frá MS Selfossi um nýja pökkunarvél sem verið var að taka í notkun þar, sagt frá heimsókn mjólkurframleiðenda til KS og Framleiðendaþjónusta SAM er kynnt.

Hér getur þú nálgast nýjasta Sveitapóstinn og einnig eintök af eldri tölublöðum.

Til baka

Auðhumla

Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.

Lesa meira

Gæðaráðgjafar

Hans Egilsson: Sími 861-4775

Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772

Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397

Steinþór Guðjónsson: Sími 836 4770

RM rannsókn: Sími 450-1242