13.11.2007Hvað er FFS og Kas (Kasein)?
Tekinn hefur verið í notkun nýr mælingabúnaður hjá Rannsóknarstofu Mjólkuriðnaðarins í stað eldri búnaðar og eru efnamælingar tank og kýrsýna mældar í þessum búnaði ss. fita, prótein, frumutala, úrea og fleira.
Úrefnamælingar eða úrea verða nú nákvæmari og marktækari en áður og gefa betri mynd af fóðrun kúa.
Það sem að bændum snýr er að á niðurstöðublöðum fyrir tanksýni og einstaklingssýni úr kúm (kýrsýni, hvítu kassarnir) bætast nú við tveir mælingaþættir sem nýtast munu samlögum, nautgriparæktinni og mjólkurframleiðendum sjálfum eða a.m.k hjá þeim sem áhuga hafa á þessum nýju mælingum þó ekki væri nema til gamans.
Þarna gefur að líta skamstafanirnar ffs og kas. eða kasein.
Ffs og Kas eða kasein mun birtast sem tölugildi bæði á tanksýnablöðum og blöðum með niðurstöðum kýrsýna (einstaklingssýna)
Ffs stendur fyrir fríar fitusýrur í mjólk og gefur upplýsingar um magn þeirra í mjólkinni, en best er að vera með sem lægsta tölu í þessum þætti þar sem hærri gildi gefa vísbendingu um sundrun fitukúla með hugsanlegum bragðgöllum og verra hráefni til vinnslu að einhverju leiti og að miklu leiti ef talan er yfir ákveðnum mörkum.
Sundrun fitukúla getur orsakast m.a. af frystingu eða skjænismyndun í mjólkurtanknum við byrjun kælingar oftast eftir losun þegar fyrst er mjólkað í tankinn, eða með öðrum orðum of hastarleg kæling og pískun frá hræruspaða þegar lítið er í tanknum.
Það þýðir að stórir mjólkurtankar með lítið mjólkurmagn eru líklegri til að valda skemmdum á mjólkinni og þá einnig vegna þess að hræruspaðinn þeytir lofti í mjólkina meðan hún nær ekki upp fyrir spaðann.
Annar þáttur sem valdið getur sambærilegum skemmdum á mjólkinni er mikið loftinnsog eða loftpísskun við mjaltir t.d. lekir kranar og samskeyti, of stór loftinntök mjaltatækja og mikið sog meðfram spena í mjöltum svo eitthvað sé nefnt.
Mælikvarðinn er frá 0 og upp en algengt er að sjá megi tölur frá 0,30 – 0,70 en það þykir í lagi og nokkuð gott að vera neðan við 0,70.
Ef gildin eru farin að nálgast 1,0 eða frá 0,80 og uppúr er orðið tímabært að skoða ástæður sér í lagi ef tölurnar eru stöðugt í hærra lagi til lengri tíma.
Tölur yfir 1,0 eru taldar of háar.
Mælingin Kas eða Kasein stendur fyrir innri hluta próteinmælingar og segir til um innbyrðis skiptingu próteina mjólkurinnar og mælir ostaprótein m.a. kappa-kasein sem þýðir í einfaldri útskýringu að mjólk með hátt prótein og hátt hlutfall þess af ostapróteini er betur fallin til ostagerðar þ.e. nýtingarhlutfall hennar er til að mynda betra.
Þannig mætti til dæmis sjá mun milli bæja á ákjósanlegu hráefni til ostagerðar og annarrar vinnslu henni líkrar svo tekin séu augljós dæmi.
Þarna er best að vera með sem hæðsta tölu venjulega u.þ.b. 80% af próteintölunni
Þá verður spennandi að sjá hvort einstakar kýr gefa meira ostaprótein en aðrar og hvort hærrra hlutfall frírra fitusýra er viðloðandi sumar skepnur en ekki aðrar og þá eins hvort sjá megi hugsanlega í ræktuninni naut sem gefa hærri eða lægri gildi hvað þessar mælingar áhrærir.
Þetta var fljótsoðin skýring á þessum nýju efnamælingum en gagnast vonandi að einhverju leiti bændum og áhugasömum.
25. maí 2005
Kristján Gunnarsson mjólkureftirlitsmaður
