Mjólkurflutningar
Mjólkurflutningar hafa alla tíð verið á ábyrgð mjólkurframleiðenda. Stjórn Auðhumlu tók ákvörðun snemma árs 2007 að félagið myndi stefna að því að yfirtaka kostnað vegna mjólkurflutninga eftir því sem efni og aðstæður leyfðu á næstu árum.
Framleiðendur greiða árið 2011 kr. 2,50 á hvern lítra fyrir mjólkurflutninga en raunkostnaður er í kringum 3,30 þannig að niðurgreiðsla Auðhumlu nemur um 0,80 krónur fyrir hvern lítra. Framleiðendur sem ekki eru félagsmenn í Auðhumlu njóta ekki niðurgreiðslunnar eins og félagsmenn.
